e-Remote
2,3,4

e-Remote. Aðgerðir sem tengjast nettengdu ökutæki

1.
e-up!: Raforkunotkun í kWh/100 km: í blönduðum akstri 14,8-14,4; CO2-losun í g/km: í blönduðum akstri 0. Fyrir bílinn liggja eingöngu fyrir notkunar- og útblásturstölur samkvæmt WLTP, en ekki samkvæmt NEDC. Upplýsingar um notkun og CO2-losun á tilteknu bili eftir því hvaða útbúnaður er valinn fyrir bílinn.

e-Remote. Aðgerðir sem tengjast nettengdu ökutæki

Þjónusta e-Remote

Car-Net e-Remote býður upp á þægilegan aðgang að helstu eiginleikum raf- eða tvinnbílsins þíns frá Volkswagen,

Einstaklingur situr í sófa og horfir brosandi á farsíma

 Þú gætir einnig haft áhuga á þessu

Aksturinn verður afslappaðri. Með netþjónustu Car-Net.

Netþjónusturnar. Svona gerir þú Volkswagen-bílinn þinn nettengdan.

Ertu með spurningar? Hér færðu skjót svör eða persónulega ráðgjöf í tengslum við stafrænar þjónustur okkar.

Fyrirvari frá Volkswagen

2.

Eyðslu- og útblásturstölurnar sem hér koma fram voru mældar með lögboðnum mæliaðferðum. Hinn 1. janúar 2022 kom WLTP-mæliaðferðin alfarið í stað NEDC-mæliaðferðarinnar og liggja því ekki fyrir NEDC-gildi fyrir bíla sem hafa hlotið gerðarviðurkenningu síðan þá.

Upplýsingarnar eiga ekki við um tiltekinn bíl og eru ekki hluti framboðs, heldur eru þær eingöngu til samanburðar á mismunandi gerðum bíla. Aukabúnaður og fylgibúnaður (tengibúnaður, dekk o.s.frv.) geta breytt viðeigandi kennistærðum bílsins, t.d. þyngd, núningsviðnámi hjólbarða og loftmótstöðu, og kunna ásamt veður- og umferðarskilyrðum og aksturslagi að hafa áhrif á eldsneytisnotkun, orkunotkun, losun koltvísýrings og akstursgetu bílsins. Sökum raunhæfari skilyrða við mælingu er mæld eldsneytisnotkun og losun koltvísýrings samkvæmt WLTP í mörgum tilvikum hærri en þegar notast er við NEDC-aðferðafræðina. Þetta getur leitt til samsvarandi breytinga á bifreiðaskatti frá og með 1. september 2018. Frekari upplýsingar um muninn á WLTP og NEDC er að finna á https://www.volkswagen.is/is/fyrir-eigendur/gagnlegar-upplysingar/wltp.html.

Nánari upplýsingar um tilgreinda eldsneytisnotkun og tilgreinda sértæka koltvísýringslosun nýrra fólksbíla er að finna í „Leitfaden über den Kraftstoffverbrauch, die CO2-Emissionen und den Stromverbrauch neuer Personenkraftwagen“ (leiðarvísi um eldsneytisnotkun, koltvísýringslosun og rafmagnsnotkun nýrra fólksbíla) sem fæst ókeypis á öllum sölustöðum og hjá DAT Deutsche Automobil Treuhand GmbH, Hellmuth-Hirth-Str. 1, D-73760 Ostfildern, Þýskalandi, eða á vefslóðinni www.dat.de/co2.

3.
Til þess að geta notað Car-Net-þjónustu þarf að vera með Volkswagen ID-notandareikning og skrá sig inn með notandanafni og lykilorði. Auk þess þarf að gera sérstakan samning við Volkswagen AG á netinu. Til þess að geta notað þjónustuna ókeypis allan umsamda gildistímann þarf að skrá bílinn á www.myvolkswagen.net eða með appinu Volkswagen (sem er fáanlegt í App Store og Google Play Store) innan 90 daga frá afhendingu bílsins. Ef skráning fer fram síðar styttist tíminn sem hægt er að nota þjónustuna ókeypis sem því nemur. Aðeins er hægt að nota netþjónustuna Car-Net Guide & Inform með aukabúnaðinum Discover Media og Discover Pro. Einnig þarf fartæki sem getur tengst internetinu (t.d. farsíma) og hægt er að nota sem Wi-Fi-aðgangsstað. Með símatenginu „Business“, sem er fáanlegt sem aukabúnaður, ásamt leiðsögukerfinu Discover Pro er einnig hægt að nota farsíma sem styður rSAP (remote SIM Access Profile) eða SIM-kort með síma- og gagnaáskrift. Car-Net-þjónustan er aðeins í boði með farsímaáskrift notanda hjá símafyrirtæki og innan þjónustusvæðis farsímakerfisins. Viðbótarkostnaður kann að hljótast af gagnaflutningi í gegnum internetið, allt eftir gjaldskrá viðkomandi farsímafyrirtækis og sérstaklega við notkun erlendis (t.d. reikigjöld). Við mælum eindregið með því að samið sé við símafyrirtækið um greiðslu á föstu gjaldi fyrir ótakmarkað gagnamagn vegna notkunar Car-Net-þjónustunnar. Til þess að nota ókeypis Volkswagen-appið þarf farsíma með viðeigandi iOS- eða Android-stýrikerfi og SIM-kort með gagnaáskrift notanda hjá símafyrirtæki. Framboð á Car-Net-þjónustu getur verið mismunandi eftir löndum. Þjónustan er í boði í umsaminn samningstíma hverju sinni og kann að taka efnislegum breytingum meðan á honum stendur. Nálgast má nánari upplýsingar um Car-Net á connect.volkswagen.com og hjá söluaðilum Volkswagen. Upplýsingar um verðskrá fyrir farsímaáskrift fást hjá viðkomandi símafyrirtæki.
4.
Sem stendur er ekki hægt að panta e-up! með sérvöldum útbúnaði. Hins vegar standa tilbúnir bílar sem þegar er búið að framleiða til boða. Hafðu einfaldlega samband við Volkswagen-samstarfsaðilann þinn.