Hvað þú þarft til þess að geta notað
Car-Net

Þetta þarftu1

Car-Net-leiðsögukerfin Discover Media, Discover Pro og Composition Media.
2
2.
Myndir sýnir nýja kynslóð upplýsinga- og afþreyingarkerfa; þjónustan er einnig í boði í eldri kynslóð ökutækja

Til þess að þú getir notað Guide & Inform Car-Net-þjónustu þarf Volkswagen-bíllinn þinn að vera með leiðsögukerfi. Meðal annars Discover Media og Discover Pro sem og Innovision Cockpit sem er fáanlegt fyrir Touareg.

Fyrir Car-Net-þjónustupakkann Security & Service þarftu hins vegar eingöngu neyðarþjónustuna og getur notað hann án takmarkana með útvarpinu Composition Media með sama hætti og App-Connect.

Til viðbótar við leiðsögukerfið Discover Pro mælum við með símatenginu „Business“ sem gerir kleift að setja upp Wi-Fi-aðgangsstað í Volkswagen-bílnum. Þannig nýtist fjölbreytileg þjónusta Car-Net þér og farþegum þínum sérstaklega vel.

Með Volkswagen-appinu geturðu stjórnað ýmiss konar þjónustu í gegnum farsímann. Ef farsíminn er paraður við upplýsinga- og afþreyingarkerfið getur hann einnig séð fyrir internettengingu til þess að nota Car-Net. Fyrir tiltekna eiginleika þarf ákveðinn tæknibúnaður að vera fyrir hendi í bílnum, t.d. þjófavarnarkerfi fyrir þjónustuna „Netþjófavarnarkerfi“.

Allt eftir því um hvernig bíl er að ræða standa mismunandi hugbúnaðarpakkar til boða sem hægt er að kaupa í Volkswagen-appinu eða á svæðinu þínu í myVolkswagenOpna ytri hlekk (ef það hefur ekki þegar verið gert við kaup á Volkswagen-bílnum). Þegar tæknileg skilyrði hafa verið uppfyllt þarf að stofna Volkswagen ID-notandareikning í nokkrum einföldum skrefum.

  • Leiðsögukerfið Discover Media, Discover Pro eða Discover Premium
  • Útvarpskerfið Composition Media (takmarkað)
  • Android™- eða iPhone®-farsími með internettengingu
  • Car-Net-þjónustupakki
  • Volkswagen ID-notandareikningur
Innskráning á notendasvæði myVolkswagen

Til þess að geta notað netþjónustuna með þægilegum hætti hvar sem er skaltu skrá þig inn með Volkswagen ID-notandareikningnum þínum á notandasvæði myVolkswagenOpna ytri hlekk eða í Volkswagen-appinu og skrá þig síðan með bílnum. Ef þú ert ekki með Volkswagen ID-notandareikning er þér leiðbeint í gegnum skráninguna skref fyrir skref.

Notkun í Volkswagen-appinu og myVolkswagen

Til þess að geta notað netþjónustuna með þægilegum hætti hvar sem er skaltu skrá þig inn með Volkswagen ID-notandareikningnum þínum á notandasvæði myVolkswagen eða í Volkswagen-appinu og skrá þig síðan með bílnum. Ef þú ert ekki með Volkswagen ID-notandareikning er þér leiðbeint í gegnum skráninguna skref fyrir skref.   Notkun í Volkswagen-appinu og myVolkswagen  Maður situr í Volkswagen-bíl og horfir á farsímann sinn

Þegar þú ert búin(n) að skrá þig geturðu notað eiginleika Car-Net-þjónustunnar á þægilegan og aðgengilegan hátt á svæðinu þínu í myVolkswagen eða með Volkswagen -appinu í farsímanum. Sæktu appið hér:

Sækja í App StoreOpna ytri hlekk

Sækja í Google PlayOpna ytri hlekk

 Þú gætir einnig haft áhuga á þessu

Aksturinn verður afslappaðri. Með netþjónustu Car-Net.

Hér færðu upplýsingar um hvernig tengimöguleikar létta þér lífið. 

Ertu með spurningar? Hér færðu skjót svör eða persónulega ráðgjöf í tengslum við stafrænar þjónustur okkar.

Fyrirvari frá Volkswagen

1.
Til þess að geta notað Car-Net-þjónustu þarf að vera með Volkswagen ID-notandareikning og skrá sig inn með notandanafni og lykilorði. Auk þess þarf að gera sérstakan samning við Volkswagen AG á netinu. Til þess að geta notað þjónustuna ókeypis allan umsamda gildistímann þarf að skrá bílinn á www.myvolkswagen.net eða með appinu Volkswagen (sem er fáanlegt í App Store og Google Play Store) innan 90 daga frá afhendingu bílsins. Ef skráning fer fram síðar styttist tíminn sem hægt er að nota þjónustuna ókeypis sem því nemur. Aðeins er hægt að nota netþjónustuna Car-Net Guide & Inform með aukabúnaðinum Discover Media og Discover Pro. Einnig þarf fartæki sem getur tengst internetinu (t.d. farsíma) og hægt er að nota sem Wi-Fi-aðgangsstað. Með símatenginu „Business“, sem er fáanlegt sem aukabúnaður, ásamt leiðsögukerfinu Discover Pro er einnig hægt að nota farsíma sem styður rSAP (remote SIM Access Profile) eða SIM-kort með síma- og gagnaáskrift. Car-Net-þjónustan er aðeins í boði með farsímaáskrift notanda hjá símafyrirtæki og innan þjónustusvæðis farsímakerfisins. Viðbótarkostnaður kann að hljótast af gagnaflutningi í gegnum internetið, allt eftir gjaldskrá viðkomandi farsímafyrirtækis og sérstaklega við notkun erlendis (t.d. reikigjöld). Við mælum eindregið með því að samið sé við símafyrirtækið um greiðslu á föstu gjaldi fyrir ótakmarkað gagnamagn vegna notkunar Car-Net-þjónustunnar. Til þess að nota ókeypis Volkswagen-appið þarf farsíma með viðeigandi iOS- eða Android-stýrikerfi og SIM-kort með gagnaáskrift notanda hjá símafyrirtæki. Framboð á Car-Net-þjónustu getur verið mismunandi eftir löndum. Þjónustan er í boði í umsaminn samningstíma hverju sinni og kann að taka efnislegum breytingum meðan á honum stendur. Nálgast má nánari upplýsingar um Car-Net á connect.volkswagen.com og hjá söluaðilum Volkswagen. Upplýsingar um verðskrá fyrir farsímaáskrift fást hjá viðkomandi símafyrirtæki.